31.10.06

Starfsframi

Ég hef verið að pæla í því hvað ég á að gera við líf mitt. Hvað langar mig að læra? Við hvað langar mig að vinna? Í þessu hef ég verið að spá alveg frá því að ég byrjaði í menntaskóla. Svörin virðast ekkert ætla að nálgast mig.
Einu sinni var ég ákveðinn í því að læra sagnfræði, lífræði hljómaði skemmtilega, að vera leikari virkar spennandi, kvikmyndatökumaður hefur verið draumur lengi, langar mikið að læra meira að syngja, ég hét því eitt sinn að ef ég ynni í Lottóinu þá myndi ég stofna ferðaþjónustufyrirtæki, köfun er eitthvað sem ég sé mig gera, stundum langar mig að verða þingmaður. Ég lofaði sjálfum mér að vorið 2007 myndi ég ákveða hvað ég ætlaði að læra, vonandi tekst mér það.

En nú spyr ég ykkur sem þetta lesa (þið þekkið mig best) að segja mér hvað ykkur finnst að ég ætti að gera! Allar uppástungur eru vel þegnar.

kv, Benni

3 ummæli:

Haukur sagði...

Þegar stórt er spurt er lítið um svör. Ég er sjálfur í þessari stöðu líka, er hálf týndur.

Ég er á því að maður eigi bara að prófa sig áfram, prófa sem allra flest. Á endanum hlýtur maður að hitta á eitthvað sem maður hugsar "hey, þetta langar mig að læra/gera". A.m.k. vonast ég til að hitta á "hið rétta" á næstunni.

Reyndar sýnist mér að þitt vandamál sé annars eðlis en mitt; þú virðist hafa of margar hugmyndir og eiga erfitt með að velja á milli.

Friðþjófur sagði...

Það er nokkuð til í því sem að Haukur segir - það er svo margt í boði að þú virðist ekki vita hvar þú viljir byrja. Sem er svona svipuð staða og eg finn mig oft í.

Kannski er þetta bara spurning um hvar þú viljir byrja? En hvar og hvenær, eru þá kannski spurningarnar.. Jah - hvernig væri að byrja hér og nú? Hljómar eins og versta klisja úr dr. Phil eða eitthvað, en í alvöru talað. Hver segir að það sé betra að byrja á einu heldur en öðru?

Í allri minni leitun að námi og framtíð hef ég uppgötvað að tíðin er allt allt önnur en hún var. Í gamla daga lærði fólk til starfs síns sem það sinnti þar til það mátti hætta. Nú á dögum er ekkert sem segir að maður geti ekki unnið í BT og verið í 50% námi með.. og svo má endalaust halda áfram.. Það er hægt að bæta við sig nami hægt og hægt og í gegnum námið kynnist maður fólki og fer í verkefni og fær vinnur og getur notið lífsins..

Spurningin er kannski ekki hvað maður vill verða á morgun - heldur hvað maður vill vera í dag. Ef maður hefur það á hreinu þá skýrir morgundagurinn sig sjálfur.

p.s. gerðu mér bara þann greiða að fara ekki undir neinum kringumstæðum að læra leiklist í Listaháskóla Íslands.. plís!

Nafnlaus sagði...

Einu sinni kölluðum við þig Basalt elskan, kannski ættirðu að fara í jarðfræði. Og þó, við Hákon stóðum í ströngu við að jafna sögueinkunnina, þú yrðir frábær sagnfræðingur, þú manst allt. Svo ertu reyndar einlægur líffræðiaðdáandi, það eru ekki margir sem eiga heilt David Attenburough safn. Þetta er farið að verða pínulítið flókið, ræðum þetta um jólin.