16.12.06

Fortíðin

Googlaði sjálfan mig áðan, rakst á þessa síðu.... fyndið.

Vissu þið það að það er til bær og sýsla í Skóveníu sem heitir Benedikt !

kv, Benni

Nú er allt að gerast, síðasta helgi fyrir jól, VISA kortin farin að hitna all verulega.
Kominn snjór sem vonandi fer ekki aftur fyrr en eftir páska. Þetta er skemmtileg helgi, Kiddý systir er að skíra á morgun, kemst því miður ekki, opið alla daga til 22. Svo eru tvennir karlakórstónleikar á sunnudaginn. Í Bolungarvík kl. 18 og Ísafjarðarkirkju kl.20 Aðgangur ókeypis. Allir að mæta, verður dúndur jólastuð.
Nú fer fólk að svífa að frá öðrum lands-og heimshlutum, það verður mikið fjör um þessi jól!
kv, Benni Posted by Picasa

5.12.06

Hjálparstarf

Það er alltaf gaman þegar maður vekur fólk til umhugsunar. Ég er það heppinn að ég á marga vini sem telja sig vita ýmislegt og hafa skoðanir á flestu. Ég hef mikin áhuga á hjálparstarfi og velti því oft fyrir mér hvernig maður getur hjálpað fólki sem best. Sumum hjálparstöfnunum treysti ég og öðrum ekki. Eins og er treysti ég UNICEF og Amnesty International. Hef aldrei treyst hjálparstarfi Kirkjunnar, veit ekki afhverju, beit þetta einhvern tíman í mig. Ímynda mér bara að peningurinn farí í trúboð og kirkjur í Malawi.

En svo koma menn eins og Hr. Wikipedia (Jón Gunnarsson) og benda manni á ýsmar slæmar staðreyndir um UNICEF. En á endanum þarf maður að taka þessa ákvörðun sjálfur og standa við hana. Samkvæmt Olgu er fjárhagslegt gegnsæi UNICEF mikið og aðeins 4% að framlögum fara í stjórnsýslukostnað. En samkvæmt Jóni fer mikið að fjármunum í mútur og ríkisstjórnir Afríkulanda. Hverju á ég að trúa? Bæði hafa mikið til sýns máls. Einhver vitur maður sagði eitt sinn: "Það eina sem skrifað skjal sannar, er að einhver skrifaði það" Maður veit oftast ekki hvað er satt og hvað ekki. Maður þarf að bara að ákveða það sjálfur. Taka stökkið. Á endanum vel ég leiðina hans Óskars, hún er að gefa 1000 kr, eitthvað fer í mútur kannski en vonandi fer eitthvað í að byggja skóla. 1000 kr á mánuði er engin peningur til velta sér upp úr.

benedikthreinn.blogspot.com hefur ákveðið að senda tvo fulltrúa til Afríku til að komast að hinu sanna með UNICEF og hjálparstarfið. Þeir Jón Gunnarsson og Haukur Sigurðsson ætla að fara Afríku endilanga í 5 mánuði og rannsaka málið. Niðurstöðu er að vænta í sumar.

2.12.06

UNICEF

Í kvöld var ég að horfa á söfnunarþátt UNICEF á Stöð 2. Ég hvet alla til skrá sig sem heimsforeldri. Þetta er eitthvað sem allir ættu að vera.

En í þættinum var alltaf verið að tala um hvað mikið væri hægt að gera fyrir 100kr, 500kr og 1000kr. Til dæmis kostar 700kr að bólusetja 1 barn fyrir malaríu.
Svo voru kynnarnir og fleiri duglegir við að segja: "1000 kr er ekki neitt, 2 bjórar !" og svo framvegis. Þegar fólks gerist heimsforeldri eru dregnar 1000 kr af því á mánuði til styrktar UNICEF.

Hér kemur smávegis reiknidæmi. Ef ég geri einhverja vitleysu, endilega látið mig vita.

Mánaðaráskrift að Stöð 2 er 4.995 kr fyrir M12 félaga.
Ég ætla að gefa mér það að það séu 30.000 heimili (eru líklega fleiri) með áskrift að Stöð 2
30.000 kr * 4.995 kr = 14.985.000 kr sem fara í Stöð 2 á mánuði.
14.985.000 kr * 12 mánuði = 1.798.200.000 kr í Stöð 2 á ári.

Það eru 2.568.857 börn bólusett á ári.


Til að koma til móts við þá sem eru að hugsa það.
Þá væri hægt bólusetja yfir 120.000 börn á ári í staðinn fyrir það sem verslast hjá mér.

Leggjum okkar að mörkum.

30.11.06

Sneak Peak

Ég veit að fólk bíður í ofvæni eftir að sjá nýju kvikmyndina mína. Fyrir þá sem geta ekki beðið þá hef ég sett inn smá brauðmola...


28.11.06

Nýr frændi

Langaði bara setja inn mynd af litla frænda.

 Posted by Picasa

26.11.06

Jón Gunnarsson

Jón kíkti í kaffi um daginn og náði ég þessari skemmtilegu mynd af honum.

25.11.06

Vantar mynd

Nú ætla ég að biðla til þín lesandi góður.
Mig vantar nefnilega mynd sem tekinn var af mér hér um árið. Mynd þessi var tekinn í kveðjupartýi Jóns Gunnarssonar er hann lagði upp til Grikklands. Þetta var tækifærismynd og var myndefnið ofurölvað inni á baðherbergi fyrrnefnds Jóns, þar hafði viðkomandi sofnað eftir átök við salernisskálina. Ég sá þessa mynd á sínum tíma og breiddist hún hratt um internetið. Ef einhver veit hvar þessa mynd er að finna eða þekkir til einhvers sem hefur hana undir höndum þá má sá hinn sami hafa samband við mig hið fyrsta.

Virðingafyllst, Benedikt

Nýr frændi

Hún Kiddý systir var rétt í þessu að eignast strák. Nú er maður komin með frænku og frænda.
Allt gekk vel, móður og syni heilsast vel. Nú er bara að fara að agitera fyrir því að skíra drenginn Benedikt!

kv, Benni

20.11.06

Reykjarvíkurheimsókn

Nú er furðulangt síðan ég bloggaði síðast. Ástæðan er skyndireykjarvíkurferð. Mér var boðið í partý til Tinnu og Gylfa Ólafsbarna. Ákvað að skella mér bara suður og skemmta mér! Það tókst bara með ágætum. Ég gisti hjá þeim skötuhjúum og kann þeim bestu þakkir fyrir, einstaklega þægilegt og skemmtilegt að gista hjá þeim. Ef þau kíkja á efri hæðina þá munu þau finna þar óvænta gjöf á gólfinu frá mér! Partýið var mjög skemmtilegt, hitta marga góða vini og einnig nýja. Það kíktu við vel drukknir læknanemar sem gerðu mikla lukku. Menn tóku helhjarstökk og flexuðu á dansgólfinu. Einnig var hringt til Danaveldis og spilað Gazolina fyrir ónefndan aðdáanda þess lags. Bjórglös voru brotin óg strauborð misnotuð.

Auðvitað var farið í bíó og get ég hiklaust mælt með þeim skólafélögum Borat og James Bond.
Borat var mjög fyndin og Bond mjög flottur og skemmtilegur.

Flugið heim var ágætt en ef það er einhver setning sem ég vil ekki heyra fyrir lendingu þá er það þessi: "Góðir farþegar, það er víst orðið frekar hvasst á Ísafirði en það virðist vera innan marka, þannig að við ætlum að REYNA lendingu" Reynið bara að lenda án þess að láta mann vita.

kv, Benni

15.11.06

Fix

Jæja, nú er ég búinn að laga commenta kerfið þannig að maður þurfi ekki að skrá sig til að commenta, biðst velvirðingar á þessu. Óskar minn, fyrirgefðu!

kv, Benni

14.11.06

Skemmtilegar stundir

Hafdís Sunna sendi mér þessa mynd sem er vistuð hjá fif.fi.



Ég býð í partý í kjallaranum um næstu helgi. Öllum vinum mínum boðið.

kv, Benni

Íslenskir útlendingar

Útlendingar hafa verið mikið í deiglunni undanfarið. Ég rakst á grein nýverið sem lýsir skoðun minni á þessu máli. Hún er eftir Illuga Gunnarsson og birtsit í Fréttablaðinu 12/11/06
Alltaf gaman þegar maður er sammála Illuga. Þið smellið bara á greinina til að lesa hana, hún er fyrir miðju á vinstri síðu.

kv, Benni

13.11.06

Gunnar Örn Örlygsson

Verð að hjálpa við að dreifa þessu myndbandi. Þetta eru hugmyndir að mínu skapi.

kv, Benni

12.11.06

Flugeldar

Flugeldar eru skemmtilegir. Það var námskeið í flugeldasýningum í gær. Langar að leyfa ykkur að njóta hennar.


kv, Benni

11.11.06

Vetur


Það er ekki skemmtilegt veður úti, skiptist á með snjókomu og rigningu = slabb
Ég hata slapp, ég vil hafa snjóinn.


kv, Benni

8.11.06

Meira meira dóp.

Í ljósi heitra umræða eftir síðasta blogg mitt langar mig að nefna nokkur atriði.

Haukur segir: "Hvað kemur það öðrum við hvort þú ræktir eina græna plöntu og reykir endrum og sinnum? Svo framanlega sem það skaðar ekki aðra þá sé ég ekkert að því."

Þetta væri gott og blessað ef kannabisreykingar væru löglegar, en það eru þær ekki.
Það skiptir höfuðmáli í hvað er löglegt og hvað ekki.
Ef kókaín væri löglegt þá er mér skítsama þótt að fólk neyti þess fram í dauðan, alveg eins og mér er sama þótt fólk reyki sígarettur, þeirra vandamál.
En skattpeningar okkar eru notaðir til að sporna við fíkniefnanotkun, í forvarnir og meðferðarúrræði. Mér finnst bara sorglegt að kasta þessum peningum að því virðist fyrir á glæ. Því þrátt fyrir aukin fjárframlög og umræðu þá er vandamálið ekki að minnka, þvert á móti er það að aukast.

Það þarf að taka hart á þessu eða bara lögleiða draslið og láta markaðinn sjá um það.

En þetta er eitthvað sem við eigum að tala opinskátt um og án einhverja silkihanska.

kv, Benni

7.11.06

Dóp

Nú get ég ekki þagað lengur.
Ef þú ert tekinn með dóp á þér, undir áhrifum dóps, eða að reyna að kaupa dóp.
Ef eitthvað af þessu sannast á þig fyrir dómsstólum þá færð þú lágmark 5 ára dóm mest 10 ár.
Dópvandamálið úr sögunni eða alla vega minnkað. Málið er að fólk sem tekur dóp, smyglar dópi eða selur dóp vegna þess að viðurlögin við því eru ekkert sérstök. Það er áhættunar virði að smygla inn nokkrum grömmum af kókaíni.

Í mínum huga er enginn munur á því að flytja inn dóp til einkaneyslu eða til að selja það.
Þegar maður brýst inn í hús þá er dómurinn ekki minkaður vegna þess að maður var að stela tölvu til einkanota en ekki til sölu.

Svona hlutir gera mig reiðan.

Castró er búinn að finna lausn á fíkniefnavandamálinu. Þetta er ekki staðfest en þetta frétti ég frá manni sem heimsótti þessa fallegur eyju.

Lausnin er eftirfarandi:
Ef það finnst á þér 1 gr af dópi, skiptir ekki máli afhverju þá færð þú 25 ára fangelsisdóm. Vegna þessa ströngu viðurlaga tekur enginn sjéns á því að smygla, selja eða neyta dóps. Það getur verið að þetta standist ekki alveg en ég get alveg trúað því að svona sé það hjá honum Fidel.


kv, Benni

6.11.06

Snjór

Ég elska snjó, ég gæti ekki búið lengi þar sem aldrei snjóaði.
En jæja, ég var að leika mér með myndvinnsluforrit á dögunum og bjó til tvær skemmtilegar myndir. Þið getið skoðað þær með því að smella hér. Þetta er þessa tvær mjóu.

kv, Benni

31.10.06

Starfsframi

Ég hef verið að pæla í því hvað ég á að gera við líf mitt. Hvað langar mig að læra? Við hvað langar mig að vinna? Í þessu hef ég verið að spá alveg frá því að ég byrjaði í menntaskóla. Svörin virðast ekkert ætla að nálgast mig.
Einu sinni var ég ákveðinn í því að læra sagnfræði, lífræði hljómaði skemmtilega, að vera leikari virkar spennandi, kvikmyndatökumaður hefur verið draumur lengi, langar mikið að læra meira að syngja, ég hét því eitt sinn að ef ég ynni í Lottóinu þá myndi ég stofna ferðaþjónustufyrirtæki, köfun er eitthvað sem ég sé mig gera, stundum langar mig að verða þingmaður. Ég lofaði sjálfum mér að vorið 2007 myndi ég ákveða hvað ég ætlaði að læra, vonandi tekst mér það.

En nú spyr ég ykkur sem þetta lesa (þið þekkið mig best) að segja mér hvað ykkur finnst að ég ætti að gera! Allar uppástungur eru vel þegnar.

kv, Benni