Nú ætla ég að biðla til þín lesandi góður.
Mig vantar nefnilega mynd sem tekinn var af mér hér um árið. Mynd þessi var tekinn í kveðjupartýi Jóns Gunnarssonar er hann lagði upp til Grikklands. Þetta var tækifærismynd og var myndefnið ofurölvað inni á baðherbergi fyrrnefnds Jóns, þar hafði viðkomandi sofnað eftir átök við salernisskálina. Ég sá þessa mynd á sínum tíma og breiddist hún hratt um internetið. Ef einhver veit hvar þessa mynd er að finna eða þekkir til einhvers sem hefur hana undir höndum þá má sá hinn sami hafa samband við mig hið fyrsta.
Virðingafyllst, Benedikt
25.11.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Ljósmyndari þessarar margrómuðu og drepfyndnu myndar er Telma Björg Kristinsdóttir. Myndin var tekin á útskriftargjöfina hennar svo hún ætti að geta útvegað þér hana.
Benni, kveðjupartýið er skrifað "kveðjupartýið". Einnig þegar rætt er um "kveðjupartýið" skal hefja vísifingur og löngutangir beggja handa til lofts og beygja þegar "kveðjupartýið" er nefnt.
T.d. á þessari mynd er Joey að segja Rachel frá "kveðjupartýinu".
http://monicageller.com/IMAGES/1015.jpg
Heyrðu já, ég á þessa mynd:) Hún er á flakkaranum - sendi þér hana um leið og ég finn mér tíma til að tengja græjurnar
Skrifa ummæli