Í ljósi heitra umræða eftir síðasta blogg mitt langar mig að nefna nokkur atriði.
Haukur segir: "Hvað kemur það öðrum við hvort þú ræktir eina græna plöntu og reykir endrum og sinnum? Svo framanlega sem það skaðar ekki aðra þá sé ég ekkert að því."
Þetta væri gott og blessað ef kannabisreykingar væru löglegar, en það eru þær ekki.
Það skiptir höfuðmáli í hvað er löglegt og hvað ekki.
Ef kókaín væri löglegt þá er mér skítsama þótt að fólk neyti þess fram í dauðan, alveg eins og mér er sama þótt fólk reyki sígarettur, þeirra vandamál.
En skattpeningar okkar eru notaðir til að sporna við fíkniefnanotkun, í forvarnir og meðferðarúrræði. Mér finnst bara sorglegt að kasta þessum peningum að því virðist fyrir á glæ. Því þrátt fyrir aukin fjárframlög og umræðu þá er vandamálið ekki að minnka, þvert á móti er það að aukast.
Það þarf að taka hart á þessu eða bara lögleiða draslið og láta markaðinn sjá um það.
En þetta er eitthvað sem við eigum að tala opinskátt um og án einhverja silkihanska.
kv, Benni
8.11.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Ég trúi á frelsi einstaklingsins. Mér finnst að hver eigi að fá að gera það sem hann vill, svo framanlega sem það skaði ekki aðra.
Kemur það þér við þó ég stundi villt BDSM kynlíf með eiginkonu minni? Kemur það þér við þó mér finnist gaman að labba um heimili mitt á sprellanum? Kemur það þér við þó ég tækti kanabis og reyki stundum á síðkvöldum?
En svo kemur það sem þú sagðir; skattpeningar okkar eru notaðir í meðferðarúrræði fyrir bjána sem kunna ekki að stjórna sinni eigin notkun.
Ég veit eiginlega ekki hvað er best í þessari stöðu, en 25 ára fangelsisdómur fyrir að reykja gras finnst mér alveg útúr kú.
Ef kanabis yrði gert löglegt þá væri hægt að nota skatt/toll/vsk peninga sem fengjust af kanabissölu í meðferðarúrræði. Á þann máta værum við hin í raun ekki að borga fyrir meðferðarúrræði fyrir þessa ógæfumenn.
En þá kunna sumir að spurja sig: Hvað á að ganga langt í lögleiðingu? Ef kanabis er gert löglegt af hverju ekki bara að lögleiða heróín líka?
Þarna erum við komnir útá hálan ís að mínu mati.
Ég verð nú að fá að halda áfram að taka þátt í umræðunni.
Vissulega kemur mér það ekki við þau Haukur gangi stoned og nakinn um heima hjá sér af og til. Hinsvegar er hættan alltaf sú að af og til verði oftar en maður ætlar í fyrstu og fyrr en varir er Haukur útúrreyktur á hverju kvöldi. Þetta eru þó afar slök rök fyrir því að ætla að skipta sér að notkun hans, enda er hann sjálfs síns herra.
Haukur bendir á að það eru okkar peningar sem fara í að reyna að bjarga þessu villuráfandi fólki, sem hann vill svo meina að geti stjórnað sinni eigin notkun. Má ég benda á að þetta heitir ekki fíkn vegna þess að þessu er hægt að stjórna og þar af leiðandi algerlega úr vegi að kalla þá bjána á þeim forsendum. Vissulega er bjánaskapur að byrja yfirhöfuð á að taka inn eitur sem maður verður háður og tekur því af manni völdin svo að maður fær ekki við neitt ráðið.
Skattpeningar okkar hinna eru auðvitað ein hliðin á þessu öllu - en hvað verður um þá sem í þessu lenda? Í fyrsta lagi má ætla að þeir hætti að vinna af ráði, skil þar af leiðandi ekki pening til þjóðarbúsins (sem rekur svo sjúkrahúsin), taka ekki jafn mikinn þátt í fjárhagsveltu samfélagsins (sem aftur minnkar tekjur þjóðarbúsins af þessum einstaklingum), eyða háum fjárhæðum framhjá hagkerfinu (sem fer ekki í ríkiskassann) og sjá svo lögreglu og læknum fyrir óþörfum verkefnum sem eru kostuð af ríkinu. Við sem stöndum skil á okkar hljótum að geta krafist þess af hörku að þetta sé með öllu bannað og sent þau skilaboð að annað eins verði ekki liðið. Vilji fólk lifa í samfélagi þar sem það er í lagi að reykja eina og eina jónu getur það barasta flutt til Hollands. Hérlendis er það ólöglegt, rétt eins og að stela beinhörðum peningum eða keyra yfir á rauðu ljósi.
Ef kannabis yrði gert löglegt halda margir að heimurinn verði betri. Halda menn í alvöru að verslun með eiturlyf á svörtum markaði hætti ef þetta verður löglegt? Halda menn í alvöru að það verði hægt að innheimta skatt af fólki sem á varla pening til að borga fyrir eigin neyslu og stendur í glæpum til að fjármagna hana. Verði eiturlyf selt á opnum markaði má ætla að með þeim viðskiptum verði auknara eftirlit en það er nú þegar og varla vilja eiturlyfjaneytendur taka þátt í slíku. Þá komast þeir ekki eins auðveldlega upp með glæpi sína.
En ríkið leyfir sum 'eiturlyf', það er satt. Reykingar eru auðvitað bara eitur og fólk háist þeim. Áfengi getur valdið sömu áhrifum, já og of mikið af feitum mat - mörkin má draga víða og fara út í allskyns öfga.
Mér finnst það hiklaust eiga að vera skýrt í samfélaginu að ég ætla ekki að borga undir aumingjaskap annarra, hvort sem það er löglegt eða ólöglegt.
Ég trúi líka á frelsi einstaklingsins, en frelsi er svo vítækt hugtak. Eiturlyfjaneytendur geta skaðað sjálfa sig, mér er svosum sama um það. Hvað með félagslegu afleiðingarnar? Hvernig skaða þær aðra? Hversu víðtækur þarf skaðinn að verða til að við teljum hann óásættanlegan?
Til að koma í veg fyrir allan misskilning þá er ég ekki orðinn hasshaus hér í Danmörku.
Þetta er eins með vændi, ég er fylgjandi vændi þó ég sjálfur stundi/kaupi ekki vændi.
Skoðanir, eingöngu skoðanir.
Strákar, strákar. Af hverju var ég ekki látinn vita af þessum rökræðum? Ég er sá innan vinahópsins sem hefur skrifað greinar á opinberum vettvangi um lögleiðingu fíkniefna!
http://blogg.frjalshyggja.is/archives/2005/10/fikniefni_og_fr.php
http://www.uf.is/?gluggi=frett&id=77
http://www.gyl.fi/index.php?subaction=showcomments&id=1106100865&archive=1108417606&start_from=&ucat=&siduflokkur=1
Það vantar alla manngæsku í ykkur! Ef barnið ykkar lendir í því, þó það viti að lífstíðarfangelsi sé við vörslu fíkniefna, að vera með nokkur grömm af hassi á sér, hvað myndi ykkur finnast?
Og þetta með kostnaðinn. Lauslegir útreikningar eftir ársskýrslu fangelsismálastofnunar 2003 leiðir eftirtalið í ljós:
Dagar í fangelsum: 42.222.
Heildarkostnaður við fangelsin: 715 milljónir.
Kostnaður per dag (að jafnaði) 16934 krónur.
Kostnaður per ár: 6,2 milljónir.
Og þið viljið margfalda þetta með 25 og fá út óvinnufæran og vansælan mann út úr fangelsi, mann sem hefur notið á sama tíma menntunar og heilbrigðisþjónustu sem til einskis nýtist en að láta mann spila marías í fangaklefa.
Ó. Gleymdum við að senda boðsbréf? Þú verður bara að fara að fylgjast með heitu umræðunum á benedikthreinn.com til að vera inní málunum.
En annars er ég nokkuð sammála þér í þessum málum. Lögleiða þetta bara. En hversu langt hefuru hugsað þér að ganga í lögleiðingunni? Viltu lögleiða öll fíkniefni eins og þau leggja sig?
Ég get ómögulega gert upp hug minn varðandi það hversu langt skal ganga í lögleiðingunni.
"Það vantar alla manngæsku í ykkur!" -Ég tek þessu sem kaldhæðni þar sem þetta er setning sem frjálshyggjumenn fá eflaust hreytt í sig daglega.
Fyrsti og þriðji hlekkurinn virkaði ekki.
Djöfull er ég alltaf á skjön við sjálfan mig.
Segi í fyrstu athugasemdinni:
"Ég trúi á frelsi einstaklingsins. Mér finnst að hver eigi að fá að gera það sem hann vill, svo framanlega sem það skaði ekki aðra."
Svo síðar segist ég ekki viss um hversu langt skuli ganga í lögleiðingu (!)
-Ég fer ekki á þing, það er nokkuð ljóst.
Ég hef nú tekið þann pól í hæðina að vera fylgjandi lögleiðingu fíkniefna, allra fíkniefna. Lokasvar. Lofa.
Skrifa ummæli