Í kvöld var ég að horfa á söfnunarþátt UNICEF á Stöð 2. Ég hvet alla til skrá sig sem heimsforeldri. Þetta er eitthvað sem allir ættu að vera.
En í þættinum var alltaf verið að tala um hvað mikið væri hægt að gera fyrir 100kr, 500kr og 1000kr. Til dæmis kostar 700kr að bólusetja 1 barn fyrir malaríu.
Svo voru kynnarnir og fleiri duglegir við að segja: "1000 kr er ekki neitt, 2 bjórar !" og svo framvegis. Þegar fólks gerist heimsforeldri eru dregnar 1000 kr af því á mánuði til styrktar UNICEF.
Hér kemur smávegis reiknidæmi. Ef ég geri einhverja vitleysu, endilega látið mig vita.
Mánaðaráskrift að Stöð 2 er 4.995 kr fyrir M12 félaga.
Ég ætla að gefa mér það að það séu 30.000 heimili (eru líklega fleiri) með áskrift að Stöð 2
30.000 kr * 4.995 kr = 14.985.000 kr sem fara í Stöð 2 á mánuði.
14.985.000 kr * 12 mánuði = 1.798.200.000 kr í Stöð 2 á ári.
Það eru 2.568.857 börn bólusett á ári.
Til að koma til móts við þá sem eru að hugsa það.
Þá væri hægt bólusetja yfir 120.000 börn á ári í staðinn fyrir það sem verslast hjá mér.
Leggjum okkar að mörkum.
2.12.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Gott málefni, ég byrjaði á þessu fyrir hálfu ári síðan. Koma svo, björgum heiminum, ekkert rugl!
Aldrei mun ég gefa glæpmönnunum í UNICEF krónu. Vandamál Afríku verða ekki leyst með því að henda í þeim pening.
Á meðan hluti peningsins fer til spilltra embættismanna og stríðsherra vona ég að sem fæstir skrái sig sem heimsforeldri.
„War is the beast which eats children. With food aid, we think we are feeding the children, but we may be feeding the beast.“
-Lindsey Hilsum
Heyr heyr!
Og nei Nonni hættu þessu bulli ;)
Ég veit ekki betur en að peningur UNICEF fari beinustu leið í góð verkefni en ekki til spilltra og vondra kalla. Verkefnin snúa að því að bólusetja börn og mennta svo þau geti farið sterk út í lífið - séð fyrir sér sjálf og séð fyrir börnum sínum í framtíðinni.
Það er bannað að blindast af horrorsögunum... Það er til góð þróunaraðstoð ;)
öhm...Ertu að gefa upp sölutölur Benni:)
Olga: Nákvæmlega... þú veist ekki betur.
Á meðan hluti af þessum þúsundkalli á mánuði fer í það að byggja einhverja tugi grunnskóla er ég tilbúinn til þess að láta það af hendi...það bjargar enginn heiminum með því eða leysir vandamál afríku.
Ég get ekki slegið um mig með tilvitnunum úr bókum um málefnið; ég hef hvorki séð þær né lesið. Ég treysti upplýsingunum sem ég kemst yfir í blindni, þarsem ég get ekki rakið leiðina sem 1000 kallinn minn gengur og vona bara að hann villist ekki af leið.
Hvort prósenta af honum fari til "spilltra embættismanna og stríðsherra" veit ég ekkert um.
Nonni er eflaust ekkert að bulla; þetta er e.t.v. tvíeggja sverð en ég rétti dökkhærða kallinum með rauða nefið 1000 kallinn (í mínu tilviki 500 kall (les fólk nokkuð orð í sviga með athygli?)), og vona að það geri eitthvert andskotans gagn.
Nei það er auðvitað satt - maður getur aldrei rakið 1000 krónurnar og vitað 100% hvað verður um peninginn, EN!
olgs.blogspot.com
Komst í svo mikinn ham, en vildi ekki yfirtaka bloggið hans Benna ;)
Cheers!
Skrifa ummæli