16.12.06

Fortíðin

Googlaði sjálfan mig áðan, rakst á þessa síðu.... fyndið.

Vissu þið það að það er til bær og sýsla í Skóveníu sem heitir Benedikt !

kv, Benni

9 ummæli:

Nonni sagði...

Já, svona getur tilveran verið skemmtileg.

Í gleðivímunni sem fylgdi fréttinni um Benediktarsýslu ákvað ég að athuga hvað platónski fróðleikselskhuginn minn wikipedia hefði um mig að segja og, ekki að ég hafi efast einn stundarkorn, þá olli wikipedia ekki vonbrigðum:

Nonna-á eða Nen-á er á í norðaustur Kína. Alls 1370 km, hún er stærsta þverá Songhua-árinnar í öllu Heilongjiang héraðinu.

Fyrir ykkur sem sitjið límd við tölvuskjáina, heilluð af þessum fróðleiksmolum um Nonna-á, þá er ég með nokkuð sem þið munið án efa telja sendingu að himnum ofan: Hér er hlekkur á síðu þar sem hægt er að skoða gervihnattarmynd af nafna mínum í Kína þar sem hann er eitthvað úrillur og ákveður að flæða yfir bakka sína. Njótið!

http://www.esa.int/esaEO/SEM8MD808BE_environment_3.html

Nafnlaus sagði...

Gaman að þessu.

Hinsvegar virkar hlekkurinn á Nonna-á ekki.

Nafnlaus sagði...

jú, hinsvegar klippir þetta vangefna vefútlit hlekkinn og skemmileggur!
Hér er hann klipptur í tvennt:

http://www.esa.int/esaEO/
SEM8MD808BE_environment_3.html

(Deja-Vu anyone? Finnt eins og þetta hafi gerst áður.. eða e-ð álíka varðandi url á blogginu hans Benna..)

Nafnlaus sagði...

Ég man eftir þessu nýárskvöldi...og ég man að inni í eldhhúsi, á bak við hurð, lágu á bakka besti kjúklingur sem ég man eftir að hafa smakkað. Það er alltaf gaman að þjóna fínu fólki.

Annars sé ég að á þessari gömlu síðu er kvót eignað mér, en kvót þetta mun vera stolið úr bandarískri endurgerð spænskrar kvikmyndar.

Svona eru glæpirnir lúnknir við að grafa sig uppá yfirborðið og stinga mann í bakið, aftur og aftur og aftur...

...gleðileg jól!

-óskar-

Nonni sagði...

Takk fyrir þetta Tómas, ég fattaði þetta ekki. Tölvur eru svo heimskar.

Benni: Hvar er Skóvenía?

Nafnlaus sagði...

Við aðra skoðun kemur ýmislegt skemmtilegt fram.

Eitt er hlekkur á bloggsíðu Tinnu Ólafsdóttur. Þar er hún kölluð Tinna Arnholtz? Var þetta eitthvað grín í denn eða er þetta leynilegt ættarnafn stúlkunnar?

Annað er gömul bloggsíða Gylfa Ólafssonar (tilvonandi barnsföður ofangreindrar Tinnu Arnholtz). Þar er mjög hressandi lesning á ferð.

Benedikt Hreinn sagði...

Haukur: Já, þetta er leynilegt ættarnafn Tinnu. En sökum asnalegra reglugerða má hún víst ekki heita það

Nonni: Skóvenía er það sem þotuliðið kallar Slóveníu.

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt ár Benni! :) og takk fyrir mig... langt síðan maður hefur farið í svona ekta partý ;)

Nafnlaus sagði...

Tjah, ég má víst nota þetta ættarnafn, sýnist mér svo. En er ekki pínu tilgó og snobbað að taka upp ættarnafn sem manni var ekki gefið í byrjun? Allaveganna, ég segi eins og Olga, takk fyrir partíin um jólin. Kjallarinn klikkar ekki.