15.1.07

Nýtt ár

Það er heill mánuður síðan maður bloggaði síðast. Síðan þá hefur mikið gerst.
Desember var geðveiki, það sem fólk getur verslað.
Jólin voru góð, þó að ég gerði lítið en að sofa. 26. des var haldið fyrsta Kjallarapartý af mörgum, Tequila drukið og farið á ball. Fram að áramótum var slappað af, drukinn bjór og haft uppi glens og grín. Árámótin komu með látum, þá var drukkið meira. Síðan voru allir kvaddir, sumir fóru suður, aðrir til Danmerkur, enn aðrir flúðu til Afríku.
Ég ber miklar vonir til ársins 2007. Vonandi verð ég ekki fyrir vonbrigðum
Bráðlega fer ég að taka á mikilvægum málum, enda hefur það sýnt sig að þá er meira commentað. Það sem þið megið eiga von á er:

Umferðamál
Hornstrandir
Íslenska handboltalandsliðið
Gamla fólkið
Ljótustu geisladiskaábreiður 2006

kv, Benni

Engin ummæli: