26.1.07

Þjófnaður

Mér finnst lögreglan á Ísafirði ganga fremur harkalega fram núna eftir að Jón Gunnarsson er ekki lengur við störf. Einhverjar stelpuskjátur fundu kassa fullan af áfengi grafinn í jörðu í Jónsgarði og lét lögregluna vita. Og hvað gerir löggan?? Hún hellir áfenginu niður í ræsið! Nærgætnara hefði nú verið að setja tilkynningu í BB um að fundist hefði hvítur frauðkassi með áfengi í Jónsgarði og eigandi hans beðinn að vita hans á lögreglustöðina. En nei, áfenginu er bara helt niður. Næst þegar ég gref afgangsáfengið mitt í jörðu þá verður það sko merkt með nafni og símanúmeri. Og svo er ekki nóg með að taka áfengið heldur er það auglýst á netinu að þeir hafi fundið áfengi og helt því niður, þvílik ósvífni! Þetta er ótrúlegur yfirgangur af hálfu lögreglunar á Ísafirði og ég skora á þá að biðja mig opinberlega afsökunar á þessu framferði.

kv, Benni

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er náttla fáránlegt:

'...ætla má að unglingar hafi verið að verki þótt ekki sé hægt að fullyrða um það fyrir víst. Á staðnum var einnig mikið af sígarettustubbum og má draga af því þá ályktun að unglingar haldi til á þessum stað og reyki og drekki.'

Þetta er einnig undarlegt:
'...fara með það í vínbúðina á Ísafirði þar sem því verður eytt.'

Hvers vegna ekki leggja hald á þetta unz eigandi gefur sig fram?
Finnist laus hundur - skyldi þá lóga honum strax, frekar en að hýsa hann og auglýsa eftir eiganda?
Vissulega hættusamt unglinganna vegna, að skila eftir áfengi, en æj, bara plebbalegt finnst mér.