Ef þú ert tekinn með dóp á þér, undir áhrifum dóps, eða að reyna að kaupa dóp.
Ef eitthvað af þessu sannast á þig fyrir dómsstólum þá færð þú lágmark 5 ára dóm mest 10 ár.
Dópvandamálið úr sögunni eða alla vega minnkað. Málið er að fólk sem tekur dóp, smyglar dópi eða selur dóp vegna þess að viðurlögin við því eru ekkert sérstök. Það er áhættunar virði að smygla inn nokkrum grömmum af kókaíni.
Í mínum huga er enginn munur á því að flytja inn dóp til einkaneyslu eða til að selja það.
Þegar maður brýst inn í hús þá er dómurinn ekki minkaður vegna þess að maður var að stela tölvu til einkanota en ekki til sölu.
Svona hlutir gera mig reiðan.
Castró er búinn að finna lausn á fíkniefnavandamálinu. Þetta er ekki staðfest en þetta frétti ég frá manni sem heimsótti þessa fallegur eyju.
Lausnin er eftirfarandi:
Ef það finnst á þér 1 gr af dópi, skiptir ekki máli afhverju þá færð þú 25 ára fangelsisdóm. Vegna þessa ströngu viðurlaga tekur enginn sjéns á því að smygla, selja eða neyta dóps. Það getur verið að þetta standist ekki alveg en ég get alveg trúað því að svona sé það hjá honum Fidel.

kv, Benni
3 ummæli:
Hvað kemur það öðrum við hvort þú ræktir eina græna plöntu og reykir endrum og sinnum? Svo framanlega sem það skaðar ekki aðra þá sé ég ekkert að því.
Svo við tökum Kanabis sem dæmi, þá er það langt frá því að vera eitthvað verra eða hættulegra en Brennivín.
Þetta er auðvitað mjööög fín lína, það er satt hjá Hauki. En ég er samt Bennamegin í þessum málum því við horfum alltof alltof alltof oft uppá eitthvað helvítis rugl útaf eiturlyfjum (jú og auðvitað brennivíni lika).
Málið er bara að eftirköstin af eiturlyfjaneyslu eru oft miklu verri heldur en af áfengisneyslunni og það verður seint hægt að segja að áfengi hafi jafn slæm áhrif á fólk eins og eiturlyf.
Og hverjum kemur það við að menn reyki smá af og til? Þó Haukur hafi stoppað aðeins of lengi i Köben þá finnst mér ekki réttlátt að mínir skattpeningar fari í að hjálpa þeim sem reyktu bara eina græna plöntu og svo aðra og æj, svo aðra og datt svo í hug að prófa smá sniff og svo smá spítt og þið þekkið rest. Þetta á reyndar við um áfengi, eiturlyf og reykingar - fáránlegt að það sé verið að reyna að verja frelsi einstaklingsins á þessum grundvelli.
Hverjum kemur það svosum við þó á hann sé ráðist út af einhverjum fávita sem reykti einhverntíman bara eina græna plöntu en er kominn út í ofskynjunarlyf?
'Jáh en það eru ekkert allir sem leiðast út í harðari neyslu...'
Kannt'annan?
Castro aðferðin er kanski alltí lagi, en ekki hérne fangelsiskerfið er nú þegar yfirfullt og ef þú ætlar að senda alla sem eru teknir fyrir dóp samahversu lítið eða mikið það er þá máttu fara að reyna að finna penning til að bæði laga og byggja fleiri fangelsi.
Frekar væri að hækka sektir við slíkum brotum(og fleirum) þá færðu meiri penining í kassa og ÞÁ gætir þú kanski farið að byggja fleiri fangelsi.
Skrifa ummæli