26.11.06

Jón Gunnarsson

Jón kíkti í kaffi um daginn og náði ég þessari skemmtilegu mynd af honum.

3 ummæli:

Nonni sagði...

Jæja, þá er það komið. Markmiði mínu í lífinu hefur verið náð.

Athugasemd mín við færsluna Gunnar Örn Örlygsson:
„Það er gaman að vera frábær og hluti af „Frábært fólk“.

Gunnar Örn Örlygsson hlýtur samt að vera ennþá frábærari, kyngimagnaður og töfrandi fyrst hann nær að láta heila færslu vera skírða í höfuðið á sér.

Nú er það á hreinu, markmið mitt í lífinu er að fá færslu á benedikthreinn.blogspot.com skírða eftir mér.

Til að afreka það þarf ég að taka Gunnar Örn mér til fyrirmyndar og það fyrsta sem ég þarf að gera er að drífa mig yfir á hina hlið laganna, hálf neyðarlegt að hafa aldrei setið inni.“

Ég er samt bara 22 ára, hvað á ég að gera nú?

Nafnlaus sagði...

Hvernig væri að þú keyptir bara Autopano til að losna við ljótu stafina í miðjunni? -Svo lánaru mér geisladiskinn svo ég geti fengið það líka. Plan?

Nonni: Þó takmarki þínu í lífinu sé náð þá þýðir það ekki að það sé ekkert spennandi framundan. Ekki örvænta. Hvernig væri að skella sér til Afríku?

Nonni sagði...

Haukur: Hm, Afríka hljómar vel. Hvernig væri að skella sér þá í janúar þegar mesta myrkrið og kuldinn liggur yfir Íslandi? Eigum við að hittast þar í byrjun janúar, máski í Cairo?